Fúsi&Þórey <3

Prakkararnir miklu =D

30.05.2008 21:20:00 / fusiogthorey

Þórey bloggari??=/ hehe

nei halló allir saman...
það liggur við að maður sé búin að gleyma að maður á þessa síðu líka hehehe
 en ég ætla aðeins að segja frá því sem hefur á daga manns drifið undafarið.


Ég var heima um seinustu helgi, ég kom heim á fimmtudeg, lína var með mér hún var búin að vera í heimsókn hjá mér hérna fyrir sunnan. þegar ég kom heim fór ég beint heim eginlega og litaði hárið á elínu syss, því fúsi var uppí braut með æfingu. Svo áhvað hann að fara á hjólið mitt og við elín fórum svo og ætluðum að horfa á hann en við vorum kannski búnar að vera þar í eina mínótu þá datt hann og meiddi sig =S, ég hélt að ég þyrfti að fara með hann á sjúkrahúsið en svo slapp það nú sem betur fer.
Á föstudeginum var fúsi að vinna og ég fór í litun og klippingu og plokkun og litun. svo þegar fúsi var búinn að vinna prófaði ég hjólið mitt í fyrsta skiptið, það var vægar sagt geggjað gaman!!! það var samt geggjað skrítið að setjast á svona létt hjól eftir að vera búin að venjast fúsa hjóli hehe. en þegar við vorum hætt að hjóla fengum við okkur að borða og e-ð og svo kíktum við á barinn eftir miðnætti=) hehe því þá var kjellan orðin 18 ára ;-).
Laugardagsmorguninn brunuðum við á ak til að versla fyrir afmælið mitt. mamma var þar að keyra rútu með konurnar sem vinna á leikskóla heima og á meðan þær voru í keilu kom mamma með okkur á rúntinn við fórum í rúmfó og á glerártorg svo fór mamma í ríkið fyrir mig til að kaupa efni bolluna sem ég ætlaði að hafa í afmælinu mínu=D. Við skiluðum henni svo bara og fórum í bónus þar versluðum við bara það sem við þurftum, þegar við vorum komin að kassanum þá var kortakerfið bilað og við biðum í svona hálftíma eða meira í röð þótt það hefðu nú bara verið 2 á undan okkur=S. En svo gátum við logsins haldið heim á leið. Svo þegar við komum heim fórum við beinnt að byrja að gera tilbúið fyrir kvöldið sem hafðist nú á endanum þrátt fyrir pínu óþarfa stress hjá mér. Lilja gerði í hárið á mér og málaði mig svo, það var geggjað flott=D hehe. En svo fóru gestirnir að tínast á staðinn uppúr 9 og þá byrjaði stuðið! Þetta var geggjað gaman, það heppnaðist allt 100% Fúsi og Helgi Sæmundur voru með söng og spilerý eginlega allt kvöldið svo bættist Árni Þór við líka og ekki var það nú til að skemma fyrir. En svo þegar kl var orðin 12 fór liðið ýmist á barinn svo fóru sumir á ball í Árgarði, við Fúsi fórum á barinn Vignir og Hreimur voru að spila þar og það var bara mjög skemmtilegt. Það var alveg troðið á barnum og pínu skrítið að geta allt í einu bara á barinn, bókstaflega,,,, er ég að verða gömul??=O =/ =O En núna er maður allavega orðin löglegur á svona stöðum hehe;-). En við komum heim bara uppúr 4 og fengum okkur svo að borða vorum alveg að deyja úr hungri hehe.

Á sunnudeginum vorum við bara e-ð að chilla, fórum svo í varmahlíð um 4, ætluðum að fá okkur ís en Fúsi var e-ð svo svangur svo við fengum okkur hammara=) og vorum að chatta við lilju og helgu á meðan. Það má nú kannski alveg segja að þær hafi nú ekki alveg verið þær ferskustu í heimi hehe þær fóru nú ekki að sofa fyrr en um 7 og þurftu svo að mæta í vinnu kl 9. Lilja fékk svo far með okkur heim. Þegar við komum á krókinn aftur fór fúsi á hljómsveitaræfingu, ég var svona að hlusta smá =D þegar það var svo búið fórum við og keyptum einnota grill og fúsi grillaði pylsur handa mér=D þær voru alveg ljómandi góðar. Svo var það rúsínan í pylsuendanum ég fór að hjóla, ég elska að hjóla, það er svooo gaman!!!=)=)=)=) við fórum heim um hálf 11 maður hefði getað hjólað alla nóttina en fúsi var að fara í vinnuna snemma morguninn eftir þannig að plandið var að fara snemma að sofa sem fór reyndar í rugl. Við fórum heim til bjögga og guðrúnar til að líta á hjólið fúsa, ég liggur við fékk bara sjokk þegar ég kom inní bílskúr hjólið er ekkert nema frammdekkið, frammbrettið og stýrið=S=S maður liggur við felldi bara tár, það var svo sorglegt að sjá þetta góða og fallega hjól vera í öreindum =S. Svo fórum við til Ástu með gráðuboga fyrir Bennsó því hann var að fara í stæ próf daginn eftir. Svo vorum við þar til rúmmlega 12 og þá logsins fórum við heim að sofa. J

Á mánudagsmorginum fór Fúsi svo í vinnuna og ég svaf til 11. Sigrún kom svo heim í mat kl 12 og heldur betur færandi hendi, hún gaf mér geggjað flott stórt hvítt veski. Hún er svo æðisleg. Fúsi kom svo heim rúmmlega 12 og við fórum á N1 að borða. Ég fékk svo far suður með Kidda á Hamri sem var heldur betur munur að fá bara far heim að dyrum hehe.

            En ég ætla að segja þetta gott í bili þetta var blogg í ágætri lengd og ég vona bara að þið nennið að lesa hehe=)

 

Bææ í bili=) og sjáumst fljótlega;-)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 13:28:50 / fusiogthorey

Það er í lagi að vera með fíflagang, ef það fer ekki út í sprell

Góðann daginn kæru landsmenn og aðrir fundargestir.

Nú ætla ég að skella hérna inn smá bloggi:) Það var nú komið að Þórey að blogga en þar sem tölvu og net aðstæður hennar eru mjög ömurlegar, getur hún eiginlega ekkert farið á netið og bloggað:(

En það sem drifið hefur mína daga undanfarið eru próf í skólanum, hjólað og búa til tónlist.
Það er komið nýtt lag inn á síðuna hjá okkur í Fúsaleg Helgi sem er www.myspace.com/fusaleghelgimusic    Helgi græjaði texta og ég samdi lag í hvelli og þetta er nú ágætis melódía.

Svo var alveg ruddalegur hjóladagur í gær í brautinni. Það var svona styrktardagur fyrir Jón Gunnar sem slasaðist á skagaströnd á krossara fyrir stuttu. Allavega komu fjöldi mann frá Reykjavík og Akureyri og frá fleiri stöðum á landinu og hjóluðu. Okkur leist ekkert á blikinu þarna fyrst þegar það var bara snjór í brautinni en svo þegar það var búið að hræra í brautinni þá var hun orðin ógeðslega blaut en ógeðslega skemmtileg og tók vel á 8) Fengum líka námskeið frá Gylfa champion og Jóa Kef, sem var mjööög nice:haha:  Ég vaknaði kl 9 um morguninn og fékk mér smá cheerios og fór svo að hjóla kl hálf 11 og var að hjóla til cirka 8 um kvöldið8| Og fékk mér ekkert að borða fyrren kl hálf 9. þannig að ég borðaði ekki neitt í 11 og hálfann klukkutíma:s Það er ekki gott að svelta sig hehe... En þetta var rudda gaman;)

Annars fékk ég að hitta Þórey mína aðeins um daginn og það var sko rosa gott :d Hún kom og stoppaði í 1 og hálfann dag r some en það var sko betra en ekkert :þ Svo kemur hún 22 mai heim næst í frí, sem er eftir 11 daga.
Svo er Þórey að fara að fá sér hjól :d Það verður geðveikt. Erum búin að finna eitt hjól sem okkur lýst vel á og eg ætla að reyna að skoða það á miðvikudaginn r some því þá er ég fyrir sunnan í aðgerð að láta rífa úr mér einhvern jaxl:( Það verður alveg gríðarlegt stuð hehe

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, veriði sæl ;)
Kveðja: Prakkararnir miklu ;)



» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 18:56:54 / fusiogthorey

já krakkar mínir

Það er orðið langt um liðið síðan síðasta blogg var sett inn 8|

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér þessa dagana og einnig hjá henni Þórey minni. Er búinn að vera í skólanum og þegar ég er ekki í skólanum þá er ég að vinna og ef ég er ekki að vinna þá er ég á hljómsveitaræfingu eða að spila tónlist og núna síðustu helgi var ég á námskeiði fyrir sveinspróf og verður námskeið líka alla næstu helgi.

Í gær vorum við strákarnir í Black Bananas í myndatöku og var það alveg rosalegt:haha: Fórum í slag og eitthvað og tókum bítlana á þetta á gangbrautinni hjá gagganum :)


En yfir í allt aðra sálma.
Þórey var að keppa um helgina á Hella City og lenti þar í 6 sæti á hest sem aldrei hefur farið að heiman. Þykir mér það bara alveg ruddalega helvíti dúlega gott hjá henni ;)

En ég ætla að fara að fá mér að éta og skella mér svo á hljómsveitaræfingu og brjóta settið hans nonna:p... erum búnir að rústa því á síðustu tvem hljómsveitaræfingum:haha: og svo erum við að fara að spila á féló balli á föstudaginn, erum bunir að vera að æfa eitthvað balllög fyrir þetta :d en ég er hættur þessu, veit ekkert um hvað ég á að skrifa ;)

BLESS BLESS









Veriði sæl:!:




» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 19:19:10 / fusiogthorey

Ég get svo svarið það =)

já góða blessaða kvöldið kæru landsmenn...

Nú er ég mættur til að setja inn smá blogg, eitthvað stutt og laggott.

Það er nú lítið að frétta af mér svosem en það er þó alltaf eitthvað að gerast.
Ég skrapp suður til Þóreyjar um helgina og það var algjör snilld.. Ég brunaði eftir vinnu á föstudaginn kl cirka hálf 9 og var kominn um hálf 2 um nóttina til Þóreyjar minnar ;)
Daginn eftir vöknuðum við og þá var Þórey eitthvað að drepast í maganum þannig að við fórum ekkert í hesthúsinn fyrr en eftir hádegi. Við vorum í hesthúsunum til kl 7 og það var bara fínt. Þórey var að lónsera hesta og ég fékk að prufa Fordinn hans sigga óla, Ford F-350 super duty sem er nú ekki slæm kerra sjáiði til. En svo fórum við að gefa og svo fórum við að gera okkur pínu fín því við fórum að borða á Hella City. Fengum okkur ljúffenga pizzu og svona og eftir matinn þá brunuðum við á Selfoss og skelltum okkur í tíu bíó á myndina Dead at the funeral.
Myndin fjallar allann tímann um jarðaför einhvers kall og svo gerist allt á þessari jarðaför sem manni myndi aldrei detta í hug að myndi gerast. Þetta var ótrúlega fyndin mynd því það var svo mikið af rugluðu dóti sem skeði...

Svo á sunnudeginum skrapp Þórey í hesthúsin og gaf.. á meðan var ég sofandi8) En svo lágum við bara í dvala til kl 3 eða eitthvað. Þá fórum við á Hellu og leigðum okkur mynd sem var fín og keyptum okkur svona 1 tonn af nammi :p borðuðum smá af því hehe :haha:
Svo eftir myndina pökkuðum við dótinu mínu saman:s og svo fórum við að gefa í hesthúsunum. Síðan vorum við eitthvað slök bara og við fórum að til Sigga og Birnu til að ég gæti kvatt þau bless og svo fór ég ekki fyrren um hálf 10 leytið og kom kl 2 um nóttina heim og fór svo í stærðfræði kl 8 um morguninn:|

Við skemmtum okkur mjög vel þessa helgi þótt hún hafi verið stutt en getur verið að ég fari aftur næstu helgi til Þóreyjar til að fara í einhverja fermingu hjá einhverju fólki í Reykjavík sem Þórey þekkir... Og svo er stefnan að fara á feita blús tónleika með Magic Slim and the Teardrops 18 mars í Rvk. Ef ég verð ekki að vinna þar að segja !!

Annars vorum við Helgi Sæmundur að taka upp blúslag sem ég samdi í gærkvöldi og stefnan er að fara með það í söngvakeppnina sem verður einhverntimann í mars. keppnis

En ég ætla að láta þetta gott heita og enda þetta á mynd af okkur Þóreyju ;)



bæbæ8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 21:08:46 / fusiogthorey

Haalló=)

Hæ allir..
Ég var að lenda á suðurpólnum og æðisleg helgi að baki=). Ég fór norður á fimtudaginn, með rútuni í bæinn frá selfossi og þar hitti ég Urði og við fórum í Kringluna í búðarölt og fengum okkur að borða. Ég fór svo með flugi heim. Fúsi náði svo í mig á flugvöllinn og við fórum beint uppí skóla á tónleika sem tónlistaklúbburinn var að halda, það var mjög gaman. 
               Á föstudeginum var all á fullu í árshátíðarundirbúningi, Fúsi var að setja upp  hljóðkerfi með Helga og e-m og ég var e-ð að reyna að hjálpa Lilju en var örugglega bara að þvælast fyrir hehe. Þegar Fúsi var búinn uppí skóla fór hann beint að hjóla með sigga vind, sigga heiðari mági mínum;) og einhverjum =). Ég fékk að vera aftaná nokkra hringi hehe. Svo var bara komið að því að undirbúa sig fyrir árshátíðina, ég tók mig til heima hjá Lilju og þar voru stelpurnar mínar (Lilja, Helga, Steinunn og sigrún) ásamt Huldu Maríu =). Skemmtiatriðin á árshátíðini voru skemmtileg og Matti í Pöpunum var veislustjóri, strákarnir í Black bananas tóku 3 lög sem var mjög flott, svo voru stuttmyndirnar allar geggjað fyndnar. Ballið með Palla var svo mjög gott, maður var edrú og fínn obbó fínt=) . Við fórum svo bara heim um hálf 4-4.


                Á laugardeginum vöknuðum við um hálf 11. Við fórum svo með hjólið á sandana og ÉG fór að hjóla haha, það vara geggjað gaman og gekk bara ágætlega vil. Ég var farin að skipta um gír og allt í endann hehe. Við vorum að hjóla í svona einn og hálfann tíma eða e-ð. Um kvöldið vorum við bara að horfa á mynd og hafa það gott ooooog borða nammi, það má segj að Fúsi hafi nýtt sér fullvel að það væri 52% afsl. á nammibarnum og troooooðfyllti nammipokann haha. Svo fórum við bara heim til Guðrúnar og Bjögga og horfðum á eina mynd þar. Svo fórum við nú bara heim að sofa vorum dálítið þreytt.

Þórey að græja sig í búnaðinn 8)

Þórey á fullu röri ;)

                En svo á sunnudeginum  fórum við í Tunguháls og tókum hjólið með, Kjartan Hlíðar kom líka með=) þegar við vorum komin að Breið tókum við hjólið af og ég klæddi mig í gallann Fúsa og hjólaði í Tunguháls hehe. Það var geggjað gaman ég fór alveg uppí 4 gír hehe. Við fengum svo að borða þegar við vorum komin og svo prófaði Sæmi hjólið hann fór einhvert lengst á því það mátti engu muna að við Fúsi keyrðum á eftir honum til að gá hvort allt væri í lagi en svo kom hann nú. Við fórum svo að skoða folöldin og nýju hænurnar hennar ömmu. Við fengum svo kökur og fórum svo heim um hálf 5.

Líney þarna kom mynd af þér ;)

Sæmi að prufa hjólið8)

                Gísli Rúnar skutlaði mér svo í Varmahlíð því að ég fékk far með fólki sem var í heimsókn í Lýdó suður, þegar ég var svo nýkomin í Varmahlíð hringdi Fúsi og þá féll niður tími hjá honum þannig að hann hefði þessvegna getað skutlað mér frammeftir en hann kom svo og beið með mér ;** og Ásta Begga og Gísli komu svo rúmlega hálftíma seinna. Og ég kom svo hingað suður um hálf 7.

ps. Komnar fullt af nýjum myndum í Myndasöfn !!!!!!:!:

                                                                           En ég ætla að segja þetta gott í bili

                                                                           Endilega commentið

                                                                          -bææ, Þórey Elsa=)


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 21:55:59 / fusiogthorey

Eitt stikki blogg frá Þóreyjunni=)

Hææ allir...
Ég áhvað að henda inn smá bloggi þótt ég hafi nú ekki mikið um að tala hehe:$... það gerist nú ekki mikið hjá mér, allir dagar eru eins hehe... en skemmtilegir:d.
Ég kem heim á fimmtudaginn og ég get ekki beðið hlakkar svo til að hitta Fúsa og aaaalla og fara á árshátíðina:haha:.

Pollýana er í TV hún er skondin:d

En svona til að hafa smá innihald í þessu bloggi ætla ég að segja aðeins frá deginum hjá. Hann var nú ekki mjög erfiður. En ég fór ein í hesthúsið rúmmlega 8 í morgun, gaf og mokaði til í stíjunum og spændi. Þegar það var búið fór ég heim aftur því að ég þurfti að fara með Birnu á Selfoss, hún þurfti að fara í Bónus og fleyra, kaupa svo margt þannig að hún gat ekki verið ein með Kristinn Má. Við komum heim um hálf 3, borðuðum og svo fór ég út um 3 og reið á 5 hrossum og lónseraði 2. gaf svo bara og sópaði og þegar ég var að fara komu Siggi og Guðmunda og 2 sænskar stelpur sem ætla að vera hérna um helgina, þær eru að leita af graðhesti fyrir aðra þeirra:)..
Í gær gerðist reyndar eitt pínu fyndið, við siggi vorum að temja Stjörnunótt (fyrir þá sem ekki vita þá er hún hérna í tamningu, er óttalegt tryppi greyjið) eða ekki greyjið því að í gær vorum við að lónsera hana og ég á baki og svo byrjaði hún að stinga sér ég náði að sitja í smá en datt svo af. Siggi spurði hvort að hann ætti að fara á hana en mig langaði að reyna aðeins meir og gerði það. Svo byrjaði hún aftur, stakk sér og ég af aftur en ég lenti á löppunum, Guðmunda sagði að ég hefði farið í hálfgert handahlaup eða e-ð ég er ekki alveg viss hehe. Þetta var ekkert lítið fyndið og Guðmunda meig næstum í sig af hlátri:haha::d.

    Ég kem heim í byrjun júlí eftir LM sem verður haldið hérna á Hellu. Mig hlakkar svo til að koma heim að það er ekki eðlilegt :d. Það eru bara 19 vikur þangað til :s :) .. Þegar ég kem heim kem ég til með að finna mér vinnu við e-ð því maður er að fara að búa og svonna hehe :haha:
    Talandi um LM mig langar að keppa, en mig vantar hest. Þyrfti helst að kaupa mér hest en það er bara svo dýrt:s Ég er í bobba hjáálp..?? Líney þegar þú lest þetta blogg vildi ég endilega frá comment frá þér um þetta;) og auðvitað frá bara öllum sem hafa áhuga


En ég ætla að segja þetta gott í bili... sjáumst um helgina, allavega einhverjir:haha:

    Ætla að fara að horfa á Pollýönu.. Bææ sætu. 
    -Þórey 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 14:17:44 / fusiogthorey

Já góðann daginn

Hæ þetta er fúsi sem talar

Ætla bara að kasta inn smá bloggi vegna þess að ég á að vera að hvíla mig en ég nenni ekki að hvíla mig :| Er að reyna að selja sleðann minn því ég hef engann tíma fyrir hann eins og stendur, þannig að ef ykkur vantar sleða þá er ég með frábærann sleða til sölu og það er smá auglýsing vinstra megin á síðunni.
En annars er ekkert mikið að frétta fyrir utan kannski að Þórey fór suður að vinna á mánudaginn og kemur eftir eina viku og einn dag. Planið var að fara suður til hennar núna um helgina en það er í skoðun því ég er að vinna til 7 á föstudaginn og svo er hún að vinna á laugardeginum og svo þarf ég að fara snemma norður á sunnudeginum því ég fer í tvö próf á mánudaginn. Þetta er svona soldið mikið bras en þetta kemur allt í ljós þegar það kemur ljós :p

Lalli lancer er að fara á verkstæði á föstudaginn til að fá nýja tímareim og vinstra stefnuljósið sem svona skemmtilega fauk af bílnum um daginn ;) Ekki verður gefið upp hver var á bílnum þá :haha:

En yfir í allt aðra sálma
Það verða Acoustic tónleikar fimmtudaginn 28 febrúar uppí Fjölbrautarskóla. Við í tónlistarklúbbnum ætlum að halda rólega og flotta acoustic tónleika fyrir þá sem vilja hlusta á góða tónlist. Þetta er semsagt á opnu dögunum um kvöldið en þetta verður auglýst síðar.
Svo verður árshátíðin daginn eftir eða semsagt föstudaginn 29 feb og þá ætlum við í Black Bananas að taka einhver 3 lög og svona.. mikið gaman, mikið fjör.

En nú ætla ég að hætta þessu, þetta er komið alltof mikið því það nennir enginn að lesa þetta hehe8) skelli inn nokkrum myndum með í tilefni dagsins.



Chow chow hundur sem okkur Þórey langar svo í :) Biður um að láta knúsa sig.



Það er svo gaman að vera drullugur



hitti þennann í gær

En ég er hættur þessu, veriði þar með sæl að sinni


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 00:21:57 / fusiogthorey

Hæ hó jibbí jey

Já góða kvöldið kæru landsmenn. Við viljum bjóða ykkur formlega inn á þessa heimasíðu með því skilyrði að þið spilið blús og commentið. Svo ef þið hafið ekkert að gera þá getið þið gefið okkur blóm. Við erum að kyssast !!!!!!!!! HÓLY MÓLÍ PEPPERÓNÍ með steiktum lauk og paprikuskinkusósugráðostiogsmáchillisósu...

En þá að máli málanna
Við ákváðum að gera okkur heimasíðu því við erum svo skemmtileg og lífglöð börn í hjörtum okkar... Eftir vinnu á föstudaginn gaf ég Þórey bangsa sem heitir annaðhvort Björn eða Alfreð eða Mummi eða Sigfinnur eða Stebbi á Keldulandi

En yfir í allt aðra sálma

Við ákváðum að fara á Akureyri á föstudaginn í rólega og afslappaða skemmtiferð. Komum á Akureyri um kvöldið og fórum í bíó á myndina Untraceable. Hún var helvíti góð og mjög spennandi, Þórey sá um öskrin og halda hinum bíógestunum vakandi. En fúsi sat sultuslakur í sætinu sínu eins og honum einum er lagið.. ÞAÐ VAR LAGIÐ !!!!!!!!!!! og sá um að éta poppið... Svo fórum við á Hótel KEA og gistum þar eina nótt sem var alveg rífandi gott.
Daginn eftir vöknuðum við og fórum auðvitað í tónabúðina eina sönnu. Eltum tvær gamlar konur sem voru að fara í Adam og Eva mega store og voru sennilega að kaupa strengi. En við fórum nú samt bara í tónabúðina og keyptum gítarstrengi. Svo lá leið okkar í bakarí og snæddum þar keppnis máltíð og nutum góðs af. Svo fórum við á göngugötuna og þar átti fúsi að kaupa sér Diesel buxur og eitthvað og helduru að maðurinn hafi ekki keypt föt fyrir 30 þúsund. fór fúsi á hausinn við mikinn fögnuð Þóreyjar. Svo fórum við á Glerártorg og litum í rúmfatalagerinn og keyptum okkar þar eitt stykki tvíbreiða sæng sem er rudda góð... Lá leið okkar á dominos og keyptum okkur pizzu og skelltum okkur svo á Bautatölt í skautahöllinni á AK.
Þar fylgdist hestamaðurinn mikli Sigfús Arnar með að gríðarlegri innlifun.. Og telur Þórey hann mjög efnilegann í þessum bransa. Magnús, pabbi Þóreyjar var að keppa og lenti í 9. sæti af 70 keppendum sem er mjög gott miðað við fyrsta mót hjá þeim hesti sem hann var á. Þess má nú geta að fúsi tók þátt þjálfun gæðingsins einn daginn fyrir ekki svo alllöngu síðan. (þið hefðuð átt að sjá drenginn á töltinu maður !! slík sjón hefur ekki sést síðan mikael mikasokarío reið hesti sínum árið 1956 í munchen).
En svo eftir mótið lá leið okkar heim undir tvíbreiða sæng en rúntuðum fyrst aðeins á benz.

En nú ætlum við að hætta þessu og fara að sofa "eða gera eitthvað annað ;)"

Verið þar með sæl að sinni

Við á sunnudagsrúntinum



Fúsi að taka "Bjart er yfir betlehem"



Vorum að fá okkur bíl og erum hæstánægð með gripinn :)




En nú erum við hætt þessu bulli í bili og sjáumst í næsta stríði

-Fúsi og Þórey =)

» 9 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 7342
Klukkan
Dagsetning
19. maí 2012
Textabox
Fullt af nýjum myndum í Myndasöfn !!
Könnun
Á að fara á Landsmót á Hellu í sumar